Veiðirifflamót SFS 2012
Sunnudaginn 12..ágúst n.k.efnir Skotíþróttafélag Suðurlands til árlegs veiðirifflamóts. Mótið hefst klukkan 10:00 og mótagjald er kr. 1500. Hver keppandi skýtur 15 skotum fríhendis á 100 m færi; 5 liggjandi, 5 af hné og 5 standandi. Lágmarkskaliber er 222. Ekki er leyfilegt að nota ólar eða tvífætur á byssum.
Veiðirifflanefnd SFS
Ingimundur og Guðmundur